Dollan

Hægðir eru góðar, fólk er fífl

07.02.2008 21:34:22 / rassgat

Fortíð, nútíð, framtíð

Hafiði lesið bloggþvæluna eftir sjálf ykkur...? Var að skoða blogg aftur í tímann og OMG hvað maður getur verið steiktur í kúpunni.

  Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... þið bíðið spennt

  BW
 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 19:36:55 / rassgat

Jæja fólk... orðin óþreyjufull?

Loksins loksins... kallinn kominn til að tjá sig. Fólk var farið að undrast um mig, einhverjir settu mig í flokk með hinum hamingjufíflunum (já þið vitið hver þið eruð) og aðrir héldu að ég væri frelsaður, þurrkaður og guð andskotinn má vita hvað meira var sagt. En þið eruð bara þroskaheft.

 Það sem hrinti mér loks af stað til þess að blogga aftur var út af þessu Snow Gathering þar sem að lærimeistarar mínir margir hverjir ætluðu að mæta hingað til lands og skemmta sér í nokkra daga. Ekkert að því er það nokkuð... einhverjar að totta tittlinga og aðrir að ríða í rassgat. Ég meina hverjir hafa ekki horft á Jennu Loves Rocco eða Ron Jeremy eða hvað sem þau öll heita? Og hverjir hafa skemmt sér vel yfir því? :haha: Nákvæmlega!! En nú þurftu þessa helvítis kvennréttindabeljur að opna á sér kafloðna kjaftinn sem varð til þess að þeim var neitað um gistingu á Radison SAS?!?!? COME ON HÉRNA!!! Djöfullsins graftramerarnar... ykkur væri andskotans nær að steinhalda kjafti og hætta þessu djöfullsins væli og þá myndi kannski einhver nenna að skakast á ykkur... viðbjóðir.

 Annars er maður bara rólegur á kantinum, kominn í nýja vinnu, drepast í saurgatinu eftir saltkjötið og sælgætið undanfarna daga og þokkalega sáttur bara. Er að fara til Kanada í tæðar tvær vikur eftir helgi, skoða álver og eitthvað... skilst að ölinn sé ódýr :klikk:  segi svona.

 En annars fátt annað títt, kem með eitthvað meira seinna þegar að mér verður heitt í hamsi

 Hilsen, Terten


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 20:39:24 / rassgat

Crap ass

 Jæja, einhverjar pælingar
  • Leiðist
  • Er smá kalt
  • Samt ekki of kalt
  • Er með massívar meltingartruflanir
  • Hvaða tilgangi þjónar glimmer
  • Hver fann upp á nafninu glimmer?!?
  • Rétt að koma helgi
  • Ætla ekki að detta í það
  • Þyrfti að myrða nokkrar rjúpur
  • Glimmer
  • Glimmer.... jafn asnalegt og gardína
  • Er í skítugum sokkum
  • Og prumpugri brók
  • Hugleiði hví ég er að hugsla um glimmer
  • .....
  • Best að fara að kúka
Annars ekkert... Mæli með að fólk skelli sé uppá skarð á lau kl. 2, Bjarki ætlar að flengja eitthvað strákkvikindi sem segist geta tekið hann í snjósleðaspyrnu... kókó og kleinur á staðnum.

  Alltílagigott bless

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 20:25:58 / rassgat

Rabbarbarasulta...

Var að éta eggjabrauð áðan með sultu... æj svona hrærði egg og dýfði brauði ofan í og steikti svo... tussugott. ALLAVEGANA þá fór ég að spá í rabbabarasultu... en hún heitir víst ekki rabbabarasulta heldur rabarbarasulta... skrýtið. Búið að telja manni trú um þetta síðan maður var að skíta á sig og svo er maður bara búinn að lifa í blekkingu í öll þessi ár. Djöfull lýgur fullorðna pakkið. Kæmi ekki á óvart að fleiri svona lygatilvik úr barnæsku liti dagsins ljós svona þegar að á líður. Eins að manni fannst gaman að labba aftur á bak, átti það til að fljúga á rassgatið og eyðileggja föt og tilheyrandi þannig að mamma gamla fann ráð, hún sagði við mig að ef ég myndi labba mikið svona aftur á bak að þá yrði ég afturganga... sem er rökrétt svo sem en þar sem að ég var síður en svo skarpur krakki að þá tók ég því þannig að ég myndi ganga aftur úr dauðanum... og það vildi ég sko ekki. Djöfull var maður vitlaus. Þið hljótið nú að eiga eitthvað álíka tilvikk úr ykkar æsku, endilega tjáið ykkur.

En að kjarna málsins, Ólafur Arnar nokkur útskrifaðist í gær með BS. gráðu í sögu úr Háskóla Íslands, til lukku gamli minn.

Em ég skrapp á Rockshowið á fös, nú er Queen þema tekið fyrir og þetta tókst alveg ágætilega hjá liðinu. Maður náði helvíti góðri ölvun og var á skralli til 5 eða eitthvað álíka, ágætis stuð. Meikaði hins vega engan veginn að fara aftur á skrall á lau, maður er farinn að eldast held ég.

JÆJA nóg þvaður í bili, hils í bili

Terten kveður

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 20:32:55 / rassgat

Moren Sören

Jæja fólkenz, verður maður ekki að pára eitthvað niður bara svona til að skemmta þeim aumu sem hafa ekkert annað þarfara að gera en að lesa um snillinginn mig.

Var að koma úr borginni sem var ágætis skemmtun. Var á plastsuðunámskeiði til að geta soðið saman vatnsveiturör úr plasi og þess háttar crap! Einn fyrirlesturinn var örverufræði... djöfull grasserar allt í skítkokkum og kólígerlum í kring um okkur. Eftir lesturinn þvæ ég mér DUGLEGA um hendurnar eftir að hafa kúkað þær út (þá sérstaklega þumalinn á hægri hönd því hann er alltaf á kafi í görninni á mér) því það er ótrúlega auðvelt að smitast af einhverjum vibba ef maður kannski fer í matseldina eftir kamarferð eða þess háttar! Sem minnir mig á það, þvinnkudrullið lætur eitthvað á sér standa :evil:  Er ekki sáttur.

Já ég datt í það á lau, það var ágætt svo sem en maður hefði alveg getað sleppt því. En gaman að hitt fólkið þarna í sódómuni. Bóhemlífið er semsagt á undanhaldi, maður er kannski að rosknast... en ekki þroskast, það geeeetur barasta ekki verið.

EN nóg í bili, nenni ekki að rífast um álvers og virkjunarmál núna því það eru allir sem eru einhverju viti bornir það gáfaðir að fjalla ekkert um það í fjölmiðlum eða eitthvað... leyfa þeim sem eru á móti álveri að rasa bara út. En þetta pakk á sinn rétt líka, ekki það að það ætti að hafa hann :haha:

Er farinn að reyna að kúka, en smá fróðleikur svona til að slaufa þessu tilgangslausa hjali, ef þið getið ekki kúkað og það er svolítið langt síðan síðasti burður var að þá er hægt að erta kúkataugina með því að troða sápustykki svona aðeins inn í gotraufina, þá kemst skrið á klabbið og ánægjan ein framundan :haha:

Hilsen alle samen

Terten úti


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 22:38:38 / rassgat

Álver, virkjun, stóriðja, fólksfjölgun, bjartsýni, uppgangur atvinnulífsins... er eitthvað athugavert við það?

Mér er spurn... og núna verð ég að koma inn á eitt heitasta mál sem líður um á öldum ljósvakans um þessar mundir ,álver og virkun, er eitthvað athugavert við framfarir ?

 

 



Hehe hvað andstæðingar álvers og virkjana eru illa gefnir, réttiði upp hönd þið ykkar "náttúruverndasinna" sem vissu hvar kárahnjúkar voru áður en þetta batteri allt byrjaði. Og lítið frekar í bakgarðinn hjá ykkur (og þá er ég að tala um náttúruverndasinnapakkið fyrir sunnan) og sjáið hvað er að gerast þar! Hellisheiðin og virkjunin þar, stækkun grundartangaálversins (sem ég get fullyrt að aðeins um 5 % landsmanna vissu að væri verið að stækka) og þar fram eftir götunum. Og hvað þá nesjavallavirkjun (jarðvarmavirkjun)... falleg rörin sem liggja til borgarinnar ekki satt? Hættiði þessu kjökri og fariði niður á austurvöll og leikið hálvita! Eða komiði út á land svona einu sinni á lífsleiðinni... kannski við getum boðið ykkur starf í álverinu ef þið sjáið ykkur fært að vinna með pólverjum... eða þoliði þá kannski ekki heldur eins og landsbyggðarfólkið??

 

 



  EN endilega ekki hætta að væla, það er svo gaman að hlæja að ykkur þegar þið eruð með pissið og kúkinn í buxunum, vælandi í alla fjölmiðla sem fyrir finnast og vitið nákvæmlega ekkert um hvað þið eruð að bulla. Gaman líka að sjá fréttafluttninga af þessum málum. Eiga fjölmiðlar ekki að vera óhlutdrægir í fréttafluttningi sínum á öllum sviðum? Það er ekki að sjá og heyra. En manni er svo sem skítsama orðið um það... það nennir engin að hlusta á þetta röfl núorðið nema þeir sem eru í nöldrinu. Knock your self out elskurnar mínar. Ég hlæ uppí opið geðið á ykkur. Eða eins og við í sveitinni kölluðum það í gamla daga, "ég hýja á ykkur"!

 

 



En annars er fátt annað títt í fréttum, maður er bara að vinna, sofa, éta, skíta. Hef ekki dottið í það síðan um versló... helvítis harka.

 

 



 En jæja, háttatími hjá stubbunum, natte bitte

 

 



  Out


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 11:44:23 / rassgat

Vúhú

Jæja á maður ekki að hefja þetta upp að nýju... eða eitthvað. Hef verið hreint út sagt viðbjóðslega latur við að blogga en nú verður breyting á.

 Sumarið var fínt, gott veður, mikil drykkja, fullt af hátíðum, fullt af fólki... þið fattið mig. Það var Eistnaflug, L.Ung.A, Franskir dagar, Neistaflug og svo bara þessi hefðbundna þvæli inn i mellom. Ljúft. Lítið framundan nema vinna bara.

Hef lítið nenn í að skrifa meir akkurat núna... sybbinn já!

Out


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 12:21:26 / rassgat

Roskilde

Jæja fólk... á einhver miða á Roskilde? tvo helst... tveir valinkunnir kumpánar mínir eru á leið til Danskaranns og vantar miða! Þeir sem eiga slíkt þeir mega bjalla í mig í snarhasti 8482196

Terten


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 14:35:55 / rassgat

Þvott að þvo

Ahh gleymdi einu áðan... var að kaupa mér þvottavél en fattaði svo þegar að ég var búinn að setja í hana að ég nenni ekki að þvo þvott þannig að ég auglýsi eftir einhverri sem er reiðubúin að þrífa af mér larfana fyrir... mjahh 10 þús kall á mánuði (fyrsta vikan er reyndar mjög stíf... kannski ég varpi einni kvöldmáltíð við kertaljós inn í dílinn í leiðinni) því ég á hátt í 3 ruslapoka fulla af fötum!!   Ætla ekki að gera eins og í fyrra þegar ég þvoði ekkert... ef draslið var orðið skítugt að þá keypti ég mér ný föt... þyrfti þá að stækka við mig!

Terten


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 12:13:56 / rassgat

AAAHHHH ljúflingur

Moren moren gott fólk. Hef ekki haft neinn einasta tíma í að blogga. Fór á sjóinn um mánaðarmótin, kom heim um Sjómanns, fór strax aftur á sjóinn og var að detta inn um hurðina.!!

Shit hvað Sjómanns var mögnuð. Að sjálfsögðu var hún tekin með trompi, fim-fös-lau-sun. Var illa krambúleraður á mánudeginum... og  þar að auki fór ég beint út á sjó, ekki alveg það besta í svona uber þvinnku. Herðir.

Emm núna var ég sem sagt að koma í land fyrir örfáum tímum síðan og ég lýsi því hér með yfir að ég er HÆTTUR á sjónum!! (í bili). Djöfull er það notaleg tilfinning, geta notið sumarsins og djammað og djúsað eins og mann lystir!! (eða eins og Bjarki leyfir a.m.k). Já ég er að fara að vinna hjá MCC á Íslandi (Miðbær Construction Company), ætla að verða feitur gröfukall í einhvern tíma. Ljúft. Prufa þetta í einhvern tíma allavega.

Annars er fátt nýtt á nálinni. Langar einhverjum á Ólafsvöku?? Erum tveir galvaskir sveinar að planleggja ferð til Föroyja í lok júlí og ætlunin er að tenda svokallaða Ólafsvöku... sem er svaðalegt fyllerí... helgin fyrir versló!! Er þetta ekki tilvalin upphitun fyrir versló? Taka Norrænu á fimmtudegi, taka Ólafsvökuhelgina, láta renna af sér á þriðjudegi fram á fimmtudag, taka ferjuna heim og beint á Neistaflug... hverjir eru menn í það? Erum nett heitir fyrir þessu plani, einhverjir sem höndla stútinn vel (og bara allir sem flösku geta valdið) eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við mig.

En jæja, helgin framundan... hvað er planið?

Hils, Terten


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 19:39:26 / rassgat

FOKKINGS DJÖFULLS VIÐBJÓÐS ÓGEÐISPAKK!!!

Verð að létta aðeins á mér... var að horfa á fréttirnar... HELVÍTIS UMHVERFISSINNA AUMINGJA DJÖFULLS DRULLU FOKKINGS VIÐBJÓÐIR!!!! Getiði ekki bara verið heima hjá ykkur og grenjað þar utan í hvorum öðrum???? Enn og fokkings aftur komu þessir djöfulls hroðbjóðir saman fyrir framan alþingishúsið og voru að mótmæla.... surprise! Djöfulls hægðartregðu fær maður þegar maður heyrir minnst á þetta pakk!! Helvísk gotraufin herpist svo hrottalega að maður getur ekki drullað svo dögum skiptir þegar maður heyrir þessa viðbjóðs drulluháleista væla eins og þeir fái borgað fyrir það í fjölmiðlum og bara allsstaðar í kring um mann!!! Koma þessu pakki fyrir uppá skítheiðum og hnakkaskjóta þá alla! Allt í lagi að bera viðringu fyrir náttúrunni og allt það en come FOKKINGS on... allt er gott í djöfulls hófi!! VERIÐI HEIMA HJÁ YKKUR OG DJÖFULLS DRULLU HALDIÐI FOKKINS KJAFTI.......... viðbjóðir.

 Out


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 15:42:28 / rassgat

Ái

Djöfull er ljúft að vera þunnur... það er það sem gefur góðum kenderíum gildi... massa fokkings þvinnka. Kosningarna búnar... ekkert smá ljúft. Ég er nú enginn sérstakur pólitíkus og hef ekki hingað til myndað mér skoðum á þessum flokkum sem buðu sig fram þannig að ég skilaði bara auðu. Þoli ekki þegar að fólk er að segja manni hvað maður á að kjósa, drullu haldiði bara fokkings andskotans kjafti. Ekki vera að þvinga upp á mig ykkar skoðunum á þessu kosningahjali, eigiði þetta bara fyrir sjálf ykkur. Sem sagt, kosningarnar búnar í bili = ljúft!!

Hmm er búinn að vera að vinna í landi í nokkurn tíma núna og ég held svei mér þá að það sé bara fínt. Er að spá í að taka pásu á þessari sjóara þvælu í bili. Mánuður í viðbót og svo er þetta búið... ljúft!!

Fátt annað fram að færa, er búinn að hrauka fokkings settið í spað... bíða efti næstu lotu. Djöfull er þvinnkudrullið LJÚFT!! 8)

Out!


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 19:47:25 / rassgat

Den tiden!

Hver man ekki eftir Sopa?? Eða Galsa?? Þið sem komið af fjöllum að þá eru þetta gamalkunnir svaladrykkir sem voru á markaðnum svona um '82 - '86 cirkabout! Reyndar man ég ekki hvernig Galsinn smakkaðist en Sopinn var hreinræktaður viðbjóður. Þetta var einhvers konar mysudrykkur með mangóbragði að mig minnir. Manni hryllti niður í görn af þessum hroðbjóði þegar maður smakkaði þetta.

   Man alltaf eftir þessum degi, fagur vordagur árið '84, bjuggum þá á þilljuvöllum 29 þar sem ég bý reyndar nú. Var að öslast hérna fyrir framan á Champion hjóli, bláu að lit og með grjóthörðum gúmmídekkjum... ekki þessum hefðbundnu með slögnu heldur gegnheilt gúmmí. Þótti það afar lélegt hjól, kvartaði alltaf sáran undan því, barði mann svoleiðis í fokkings rassgatið þegar maður hjólaði í holur að það var engu líkt en að einhver væri að æfa vítaspyrnur með görninni á manni. ALLAVEGA að þá var mútter að koma úr búðinni á Trabantinum sem við áttum, svartur með svona krúsídúllugardínu í afturglugganum. Lenti svo í árekstri einhvern tíman og fékk þá grænt húdd... eiturgrænt húdd á svörtum trabant með krúsídúllugardínu í glugganum... mega töff.... hvað var ég að tala um aftur?? Já Sopi... hún vippaði einni slíkri fernu til mín, kappinn organdi kátur, og slengdi rörinu í bévítans dolluna, tók nettan gúllara og kúgaðist og bölvaði eins og ég fengi greitt fyrir. Hef aldrei síðan þá smakkað þetta djöfulls skítmeti, fæ hroll við tilhugsunina. Var reyndar mynd af einhverri pervisinni ofurhetju framan á fernunni... gul/svört/brún röndótt hetja... sem bar nafnið Sopi að sjálfsögðu. Hver kallar sig Sopa? Hvaða fokkings örverpi fattaði upp á þessari "hetju"? og þessum drykk?? Hlýtur að hafa verið rekinn fyrir mongólítahátt.

  JÆJA nóg í bili, hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 13:44:56 / rassgat

Kúkur... hehe

Æj ég er hættur að meika að reyna að prufa að testa að .... eitthvað! Það sem ég er að reyna að segja er að ég nenni ekki hinu kjaftæðinu... westenterten síðu bullinu þarna! Þannig að ég kem til með að rita inn á þennan snepil þegar ég nenni því!

Annars sat ég á dollunni áðan og var í mínum hefðbundna þankagangi þegar ég fór að spá í hverjir ákveða hvað hlutirnir heita... Gardína, sköflungur, bolur, og uppáhalds orðið mitt sem er KÚKUR!!! :haha:  Hverjum datt það í hug... kúkur? Þarf að kúka... reyndar hef ég ekki notað þetta orð allsvaðalega lengi... nota alltaf orðin drulla, skíta, hrauna, verpa, rappa, bera, blómstra, hrauka og fíra. Kúka... notar maður það ekki bara ef maður vill vera dannaður eða þegar maður er að tala við smákrakka?? Kúka... kúka... kúka... ef maður segir það oft að þá tapar það gjörsamlega merkingu sinni... kúka! Sniðugt!

Annars er allt rólegt í fréttum held ég... er farinn að vinna hjá MCC í fríinu... Miðbær Construction Company... snilldin ein. Farið að styttast í eina svaðalegustu fylleríshelgi ársins... sjómannadagshelgin! Það verður ljóta sullið! Ljúft!

  JÆJA best að láta þetta nægja... fariði svo í fokkings rassgat kúkarnir ykkar... hvernig er það? Hvað kalliði kúk í fleirtölu? Kúkar? Skítar???  Hálf asnalegt myndi ég segja... sá fullt af kúkum um daginn??? er hægt að segja það? Komiði með eitthvað gáfulegra!

Pils 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Myndasöfn